Magnús Kristinsson, útgerðarmaður, kom í dag til Vestmannaeyja á nýjum farkosti, þyrlu sem hann keypti í Bandaríkjunum. Segist hann með því vera að leysa eigin samgöngumál þar sem pólitíkin hefi brugðist í þeim efnum.
Magnús er mjög háður samgöngum vegna starfa sinna. Segist hann hafa verið búinn að gefast upp á núverandi ástandi og ekki sé bjartara framundan. „Ástandið eins og það er núna er fyrir neðan allar hellur og ekki annað að sjá en að stjórnmálamennirnir ætli að svíkja allt sem þeir sögðu fyrir kosningar. Það er búið að taka bæði nýjan Herjólf og jarðgöng út af borðinu og nú á að fara í einhvern leikaraskap í Bakkafjöru sem aldrei verður að veruleika,” sagði Magnús sem hafði stuttan stans í Eyjum.
Frá Eyjum flaug hann í bústað sinn í Biskupstungum og þaðan til Reykjavíkur eftir að hafa fengið sér kaffi.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.