Hola í höggi og Albatros hjá Þorvaldi í Vestmannaeyjum

Þorvaldur Ægir Þorvaldsson fór holu í höggi í dag á Vestmannaeyjarvelli en hann sló draumahöggið á 15. braut sem er par 4 hola og 264 metra að lengd. Þorvaldur er í GV, en er fæddur í Borgarnesi, og notaði hann Callaway Fusion FT-3 dræver þegar hann sló upphafshöggið og sagði hann í samtali við mbl.is í kvöld að boltinn hefði farið í sveig til vinstri og lent síðan fyrir framan flötina.

„Maður sér ekki flötina frá teignum en ég hljóp af stað til þess að sjá boltann lenda og hann rúllaði beint ofaní holuna. Algjör heppni,” sagði Þorvaldur en þetta er í annað sinn sem hann fer holu í höggi.

Þorvaldur er með 8,5 í forgjöf og er í GV en hann sagðist ánægður með að þrjú vitni voru til staðar þegar hann setti boltann ofaní eftir upphafshöggið á par 4 holunni – sem er einnig Albatros.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.