Í dag býðst útgerðum sá möguleiki að koma upp nettengingu um borð í skip sín, nokkur skip í eyjum hafa komið upp þannig búnaði. Með þessu opnast sá möguleiki að áhafnir eða áhafnameðlimir geta leyft vinum og vandamönnum að fylgjast betur með lífinu um borð.
www.huginn.is er líklega vinsælasta bloggsíða áhafna í dag enda eru hinir fjórir fræknu bloggar þar um borð þekktir fyrir góðan húmor og er oft stutt í hláturinn við lestur þessarar síðu.
http://www.blog.central.is/sturlungar áhöfnin á Snorra Sturlusyni hefur komið sér upp vefsíðu og er að færast líf inn á þá síðu. Þá má sjá lista yfir áhafnameðlimi ásamt myndum
http://www.123.is/tobbivilla Þorbjörn Víglundsson er í áhöfn Guðmundar VE og er Tobbi með mikið af myndum og myndböndum af sjónum á sinni síðu. Á síðu Tobba eru nánast daglegar fréttir af lífinu um borð.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.