Allir í skólabúning

Skólabúningar hafa verið teknir í notkun við Grunnskóla Vesturbyggðar á Bíldudal og mættu nemendurnir búningunum í morgun. Nemendurnir eru ekki þeir einu sem mæta í búningum í skólann, starfslið hans hefur einnig fengið búninga. Það er foreldrafélag Bíldudalsskóla sem stendur fyrir framkvæmdinni.

„Við duttum bara niður á þessa hugmynd í sumar”, segir Sólrún Aradóttir formaður foreldrafélagsins. „Það voru allir foreldrarnir hrifnir af þessu og krakkarnir eru rosalega ánægðir.” Sólrún segir að foreldrafélagið borgi að mestu fyrir búningana, sem eru Henson-gallar merktir skólanum, en foreldrar borgi 1.000 krónur. „Við verðum líka með boli og stuttbuxur fyrir íþróttir, og verða þeir búningar merktir íþróttafélaginu”, segir Sólrún.

Ekki er skylda að ganga í skólabúningnum en foreldrar eru þó hvattir til þess að senda börnin sín í honum í skólann.

Óska þeim til hamingju þessum elskum – Þetta vil ég fá í Vestmannaeyjum, og það sem allra fyrst, skólabúninga.  Myndi líka vilja sjá þetta á æfingum hjá ÍBV allir í eins bolum/búningum

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.