Eru Bæjarveitur Vestmannaeyja framtíðin?

Í sumar seldi Vestmannaeyjabær sem kunnugt er hlut sinn í Hitaveitu Suðurnesja til Geysir Green Energy fyrir á fjórða milljarð króna. Síðan þá hefur farið fram fjörug umræða um hvað gera skuli við alla þessa peninga. Sýnist sitt hverjum og bæjarstjórn hefur lýst því yfir að ekki verði rasað um ráð fram við ráðstöfun þeirra. Það hentar líka núverandi meirihluta ágætlega að sitja eitthvað lengur á peningunum, því eftir því sem nær dregur kosningum eykst pólitískt vægi þeirra. En eitt er það sem menn þurfa að velta fyrir sér og það í fúlustu alvöru. Nú þegar stefnir í að GGE eignist Hitaveituna með húð og hári berast fréttir af því að leitað sé eftir erlendum fjárfestum sem hægt verði að selja hlut í GGE. Hafa þar heyrst tölur um þriðjungshlut eða þaðan af hærra. Þá hafa fjárfestingabankar á borð við Goldman Sachs verið nefndir til sögunnar.

Reynslan af einkavæðingu orkufyrirtækjanna í nágrannalöndum okkar hefur líka sýnt að alls staðar hækkar verðið og þjónustan versnar. Þar verða litlu svæðin einna verst úti. Þegar kemur að því að endurnýja vatnslögnina milli lands og Eyja, verður einhver sem hefur áhuga á því annar en við Eyjamenn? Fari hún í sundur, liggur eitthvað á að gera við? Verður það efst á forgangslistanum hjá Goldman Sachs, sem verða jú að fá viðunandi ávöxtun af fjárfestingunni sinni?

Getur hugsast að Vestmannaeyjabær muni standa frammi fyrir því eftir nokkur ár að þurfa að taka aftur yfir almenna veitustarfsemi í Eyjum, því hún skilar einfaldlega ekki nægum hagnaði á “frjálsa markaðnum”? Gæti verið að eftir nokkur ár þurfum við að stofna Bæjarveitur Vestmannaeyja til að sinna þeirri starfsemi sem skilar ekki nægum arði til New York?

Þá gæti verið gott að eiga 3,5 milljarða inni á bók.

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.