Eyjamenn gera sig klára fyrir Reykjavíkurmaraþonið
Iceland-Wales
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2025. Ljósmynd/Anton Brink

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka, fjölmennasta götuhlaup landsins, fer fram laugardaginn 22. ágúst. Hlaupið hefur verið haldið árlega í miðborg Reykjavíkur frá árinu 1984 og fer að venju fram sömu helgi og Menningarnótt.

Boðið er upp á maraþon, hálfmaraþon, 10 km hlaup og skemmtiskokk. Allar vegalengdir hefjast í Sóleyjargötu og lýkur á Lækjargötu fyrir framan Menntaskólann í Reykjavík.

Reykjavíkurmaraþonið er ekki aðeins ein stærsta íþróttahátíð landsins heldur einnig mikilvægur mannúðarviðburður. Hlauparar geta safnað áheitum til styrktar fjölmörgum góðum málefnum í gegnum Hlaupastyrk.

Fjöldi hlaupara frá Vestmannaeyjum tekur þátt í hlaupinu í ár. Í aðdraganda þess munu Eyjafréttir ræða við nokkra þeirra, kynnast hlaupaferli þeirra og undirbúningi og heyra hvaða markmið þeir hafa sett sér. Þá segja hlaupararnir frá þeim góðu málefnum sem þeir kjósa að styðja.

Fyrsta viðtalið birtist hér á Eyjafréttum á næstu dögum.

Nýjustu fréttir

Sjónarhorn flakkarans á nýja hrauninu
Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar
Íslenska neiið fer um heiminn – fiskurinn í aðalhlutverki
Vestmannaeyjahlaupið fer fram á laugardaginn
Breyttur útivistartími barna frá og með deginum í dag
Rokkið lifir – hOFFMAN sendir frá sér plötuna VIÐ í dag
Myllan flytur úr Dalnum – Eyjamenn hvattir til að halda ró sinni
Spáð hækkandi ölduhæð við Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.