Almyrkvinn blásinn af á Helgafelli – „Kannski verður blíða árið 2196
Ekki á Helgafell í dag en kannski næst.

Gunnar Friðfinnsson hættir við Helgafell vegna veðurs – Haugrigning, hávaðarok og jafnvel þoka í kortunum – Eyjamenn taka tíðindunum með húmor og velta fyrir sér snakki, grilli og nýjum gönguskóm

Það verður ekkert stjörnuskoðunarpartí á Helgafelli hjá Gunnari Friðfinnssyni, kennara við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum og áhugamanni um stjörnufræði, þegar sólmyrkvinn gengur yfir í dag. Veðurspáin hefur séð til þess að breyta þeim áformum – rækilega.

Gunnar hafði stefnt á Helgafell til að fylgjast með myrkvanum en tilkynnti breytt plön á Facebook og var ekkert að skafa utan af því. „Ég ætla ALLS EKKI upp á Helgafell að horfa á almyrkvann. Í þessu veðri sem spáð er, þá verður þetta líklega versti staðurinn á Eyjunni að vera á, haugarigning og hávaðarok, með mögulegri þoku,“ skrifar Gunnar.

Hann ráðleggur þeim sem höfðu hugsað sér að mæta að finna sér annan og skjólsælli stað. Svo slær hann á létta strengi og bendir á að alltaf sé hægt að bíða eftir næsta tækifæri. „Skoðum þetta bara fyrir næsta almyrkva sem verður árið 2196. Kannski verður blíða þá.“

Snakkið, grillið og gönguskórnir bíða

Eyjamenn létu ekki segja sér tvisvar að gera gott úr stöðunni og athugasemdirnar við færslu Gunnars urðu fljótt að hálfgerðu skemmtiefni. Einn sagði veðurspá 2196 ekki glæsilega. Annar velti því fyrir sér hvort ekki væri einfaldast að fresta myrkvanum um viku, annar sat uppi með stóru spurninguna: „Hvað á ég að gera við allt þetta snakk?“ Þá hafði ein fjölskylda greinilega ætlað að gera vel við sig og grilla á Helgafelli, en verður líklega að færa veisluna í skjól.

Samsæriskenningarnar létu heldur ekki á sér standa. Þar var því meðal annars haldið fram í gamni að einhver hefði beinlínis samið um slæma veðurspá til að fá stúkusætið á Helgafelli alveg fyrir sig.

Aðrir töldu skýringuna einfaldari: Eyjamenn hefðu einfaldlega notað allan veðurkvótann á Þjóðhátíð og ekkert verið eftir handa sólmyrkvanum. Veðurguðirnir fengu sína sneið og einn benti meira að segja á að hann væri laus þegar næsta tækifæri rennur upp. Svo er það auðvitað sárasti skellurinn: nýju gönguskórnir sem voru keyptir sérstaklega fyrir ferðina á Helgafell.

Það er því ljóst að þótt veðrið kunni að skyggja á sólmyrkvann hefur það ekki náð að skyggja á húmorinn í Eyjum. Og ef allt bregst er bara að halda snakkinu fersku, geyma gönguskóna og setja árið 2196 í dagatalið.

 

Nýjustu fréttir

Íslenska neiið fer um heiminn – fiskurinn í aðalhlutverki
Vestmannaeyjahlaupið fer fram á laugardaginn
Breyttur útivistartími barna frá og með deginum í dag
Rokkið lifir – hOFFMAN sendir frá sér plötuna VIÐ í dag
Myllan flytur úr Dalnum – Eyjamenn hvattir til að halda ró sinni
Spáð hækkandi ölduhæð við Landeyjahöfn
Olís deildirnar hefjast í vikunni
Helgarnir sigruðu á 100 ára afmælismótum TV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.