Veðurspáin ekki hagstæð – Hætt við hitting á Helgafelli – Áhugafólk um stjörnufræði verður við Breiðabakka – Myrkvinn nær hámarki klukkan 17.50
Nú er bara að treysta á Eyjaveðrið og vonast eftir einni góðri glennu síðdegis í dag þegar 99,6 prósent sólarskífunnar hverfa á bak við tunglið. Deildarmyrkvinn nær hámarki í Vestmannaeyjum um klukkan 17.50 en veðurspáin er því miður ekki sérlega hagstæð. Davíð Guðmundsson, Davíð í Tölvun Vestmannaeyjum, greindi frá stöðunni á Facebook-síðu Stjörnufræðifélags Vestmannaeyja í gærkvöldi. Þar kemur fram að hætt hafi verið við fyrirhugaðan „Hitting á Helgafelli“ vegna veðurspár.
Áhugafólk um stjörnufræði ætlar þó ekki að leggja árar í bát. Fulltrúi Stjörnufræðifélags Vestmannaeyja verður á bílastæðinu neðan við Breiðabakka, þar sem horft verður til vesturs og beðið eftir glennu í skýjahulunni. Myrkvinn hefst um klukkan 16.50, nær hámarki um klukkan 17.50 og lýkur um klukkustund síðar. „Ef við fáum glennu þá verðum við klár með stjörnusjónauka með sólarfilmu,“ segir Davíð. Einnig verða á staðnum tíu sólmyrkvagleraugu sem fólk getur skipst á að nota.

Ekki láta 0,4 prósentin blekkja sig
Þótt aðeins 0,4 prósent sólarskífunnar verði sýnileg þegar myrkvinn nær hámarki er alls ekki óhætt að horfa beint á sólina. Davíð leggur sérstaka áherslu á að nota þurfi viðurkennd sólmyrkvagleraugu allan tímann. Þessi örmjóa rönd sólarinnar gefur frá sér nægilega sterka geislun til að geta valdið varanlegum augnskaða. Sjónhimnan nemur ekki sársauka og því finnur fólk ekki endilega fyrir því þegar skaði verður.
Fái Eyjamenn hins vegar glennu á réttum tíma ætti sjónarspilið að verða eftirminnilegt. Þegar 99,6 prósent sólar hverfa breytist birtan verulega, það kólnar og dýralífið getur brugðist við eins og kvöld sé að skella á. „Það er alveg sérstök tilfinning að upplifa nánast myrkur á miðjum sumardegi, dýrin þagna og það kólnar,“ segir Davíð.
Stjörnufræðifélagið rifjar jafnframt upp deildarmyrkvann í mars 2015, þegar áhugafólk um stjörnufræði kom saman á Haugasvæðinu austan Helgafells. Nú ræður veðrið. Búnaðurinn verður klár við Breiðabakka og svo er bara að vona að skýin sýni smá Eyjagæsku rétt fyrir klukkan sex.
Ítarlegar upplýsingar og fróðleik má finna á https://solmyrkvi2026.is/