Bleika slaufan

Í októbermánuði verður vakin athygli á brjóstakrabbameini hér á landi, áttunda árið í röð, frætt um sjúkdóminn og konur hvattar til að nýta sér boð Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins um röntgenmyndatöku. Þetta er hluti af alþjóðlegu árveknisátaki, að frumkvæði Estée Lauder, en bleik slaufa er tákn átaksins.

Farið var að lýsa þekkt mannvirki erlendis í bleikum lit í októbermánuði árið 2000. Árið eftir tók Orkuveita Reykjavíkur að sér að kosta lýsingu á einu mannvirki á höfuðborgarsvæðinu, síðast var það Höfði og árið 2007 verður Viðeyjarstofa lýst upp. Einnig hefur verið varpað bleiki ljósi á mannvirki á landsbyggðinni.

Í októbermánuði 2007 verður lögð áhersla á að selja bleikar slaufur og verður afraksturinn notaður til að kaupa nýtt ómtæki fyrir Leitarstöð Krabbameinsfélagsins. Ómtækið verður notað til nánari greiningar eftir brjóstamyndatökur og við frumrannsókn á brjóstum hjá ungum konum með einkenni.

Nýjustu fréttir

Ólöf María snýr aftur í ÍBV og gerir tveggja ára samning
Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.