Eins og þeir sem mæta mér á förnum vegi í dag get séð, fór ég út að skemmta mér um helgina. Á laugardaginn síðasta var hið einstaka Lundaball haldið í Höllinni í Eyjum. Að venju var þetta hin mesta skemmtun, Ellireyingarnir stóðu sig merkilega vel í skemmtiatriðunum miðað við mannskapinn sem skipar þennan auma hóp.
Maturinn sem var í boði var alveg einstaklega góður, enda þaulvant lið eðal kokka sem sá um þá hlið, þótt reynt hafi verið að döbba einhverja afkáralega Ellireyinga upp í hvíta nærboli og þeim réttar ausur og pískarar til að veifa uppi á sviði. Og Gaui, heiðursvinur Ketils bónda stóð sig að vanda vel með sína margrómuðu humarsúpu á miðnætti.
En þó svo að þessir þættir, góður matur og skondi skemmtiatriði séu nauðsynlegur og virkilega skemmtilegur hluti af Lundaballinu, þá er það fólkið sem sækir ballið sem gerir það svona einstakt og skemmtilegt. Á Lundaballi er að finna stórskemmtilegt þversnið af íbúum Eyjanna. Þangað mætir fólk á öllum aldri úr öllum sviðum mannlífsins. Allir eru vinir, þótt ólíkir kunni að vera, og fá sér í glas og spjalla saman. Ég varð einmitt vitni að samtali tveggja afar ólíkra einstaklinga á þessu balli. En þrátt fyrir að hafa ekki heyrt hvað á milli þeirra fór fyrir basadrununum frá rakaranum, þá var afar gaman að fylgjast með. En skemmtilegast þótti mér þó þegar ég frétti hvað á milli þeirra fór.
Upp úr kl. 02:00 vatt sér kona komin yfir miðjan aldur, íklædd gallajakka, sér að Sigurði “Svíja” Birni “Bongó” Oddgeirssyni og spurði hann einhvers. Upp úr þessu spunnust umræður sem tóku nokkra stund. Þegar konan svo snéri sér að öðrum erindum en að ræða við Sigurð leit hann til mín glottandi út að eyrum og tjáði mér hvað á milli þeirra hefði farið. Konan hafði víst eftir nokkurt spjall spurt Sigurð hversu lengi hann hefði búið á landinu. Hann, án þess að ljúga neinu, kvaðst hafa búið hér í yfir 26 ár. Þá klappaði gallajakkaklædda konan honum á öxlina og sagði: “gangi þér vel vinur” og gekk á braut.
Líklega hefur Sigurður annað hvort verið orðin svona þvoglumæltur þegar þarna var komið við sögu, eða að gallajakka konunni hafi fundist albínóahúð hans svona framandi.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst