Martin Eyjólfsson nýr sviðsstjóri viðskiptasvið utanríkisráðuneytisins

Ákveðið hefur verið að Martin Eyjólfsson taki við starfi sviðsstjóra viðskiptasviðs utanríkisráðuneytisins. Martin tekur við starfinu af Berglindi Ásgeirsdóttur sem í september varð ráðuneytisstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Martin hóf störf í utanríkisþjónustunni 1996 og hefur víðtæka reynslu af rekstri EES-samningsins og gerð viðskiptasamninga. Hann starfaði fyrst í ráðuneytinu á viðskiptaskrifstofu frá 1996 þar til hann fluttist til starfa við sendiráð Íslands í Brussel 1998. Hann sneri aftur í ráðuneytið árið 2002 og fékkst m.a. við gerð loftferðasamninga og fríverslunarsamninga þar til hann varð forstöðumaður viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins árið 2003. Í ársbyrjun 2007 tók hann við stöðu skrifstofustjóra Evrópuskrifstofu. Martin tók þátt í samningaviðræðum við ESB um stækkun EES 2004 og 2007 og hefur flutt dómsmál fyrir dómstól Evrópubandalaganna og EFTA-dómstólnum. Hann sinnir stundakennslu í Evrópurétti og alþjóðaviðskiptum við Háskólann í Reykjavík.

Martin er fæddur 1971 og lauk kandídatsprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 1997.

Nýjustu fréttir

Minningar um gos – söngvar og sögur í Eldheimum
„Fínasti vertíðarfiskur”
Kallað eftir hugmyndum fyrir Goslokahátíð 2026
Ein ferð í Landeyjahöfn
Heilsurækt við Íþróttamiðstöðina boðin út á ný eftir kærumál
Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.