Hæstiréttur hefur fellt úr gildi frávísun Héraðsdóms Reykjavíkur á bótakröfu útgerðarfélagsins Dala-Rafns í Vestmannaeyjum á hendur tveimur olíufélögum, Olís og Kers. Héraðsdómur taldi að krafa útgerðarfélagsins á hendur olíufélögunum væri óljós en á það fellst Hæstiréttur ekki og hefur lagt fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeðferðar.
Dala-Rafn taldi að olíufélögin Skeljungur, Ker og Olís bæru ábyrgð á tjóni, sem útgerðin hefði orðið fyrir á árunum 1996-2001 vegna missis hagnaðar. Krafðist félagið 8,4 milljóna króna bóta og vísaði til samanburðar við olíumarkaðinn í Færeyjum.
Héraðsdómur vísaði frá kröfum Dala-Rafns gegn Olís og Keri en ekki Skeljungi. Sagði dómurinn að kröfur Dala-Rafns væru rökstuddar með útreikningum sem miði við kaup félagsins og verð hjá Skeljungi. Fyrirtækið hafi átt viðskipti við olíufélögin öll en mismikil að fjárhæðum og eftir tegundum eldsneytis. Ætti að vera unnt að aðgreina viðskiptin og þá hugsanlegt tjón.
Þá taldi héraðsdómur, að ekkert lægi fyrir um að tjón Dala-Rafns hefði orðið það sama hvort sem það hefði verið í viðskiptum við Skeljung eða hin félögin. Því væri óljóst af málatilbúnaði Dala-Rafns hvort fyrir hendi sé skilyrði sameiginlegrar ábyrgðar af hálfu olíufélaganna þriggja um að þau hafi valdið sama tjóni og Skeljungur þannig að um óskipta ábyrgð þeirra gæti verið að ræða.
Hæstiréttur segir hins vegar, að það sé á forræði Dala-Rafns hvaða gögn hann færi fram til þess að sanna tjón sitt. Málsaðilar hafi ekki lýst gagnaöflun lokið þegar málið var tekið til úrskurðar um framkomna frávísunarkröfu en Dala-Rafn hafi í stefnu gert áskilnað um framlagningu gagna, dómkvaðningu matsmanna og skýrslugjafir fyrir dómi.
Þá segir Hæstiréttur, að grundvöllur málatilbúnaðar Dala-Rafns sé nægilega skýr um það hverja hann krefji um skaðabætur og á hvaða málsástæðum hann reisi kröfur sínar. Mótmæli Olíuverslunar Íslands og Kers um gildi þeirra gagna, sem Dala-Rafn reisi útreikninga sína um tjónið á og aðrar fullyrðingar þeirra um að Dala-Rafn hafi ekki sýnt fram á tjón sitt með viðhlítandi gögnum, varði efnishlið málsins en leiði ekki til frávísunar þess.
Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst