TRÚIR ÞÚ Á TÁKN OG UNDUR ???

á laugardagskvöldið var mögnuð stund og var verið að tala um dýrð Guðs. Hvernig Jesús fór frá dýrð föðurins á himnum til að koma á jörðina sem þjónn og að deyja fyrir syndir okkar. En svo reis hann upp frá dauðum og er stiginn í dýrð föðurins aftur á ný í dag. Guð er faðir okkar sem trúa og hann hefur gert okkur að erfingjum alls þess sem hann á!!! Hugsið ykkur, að öllu því sem tilheyrir Guði, því eigum við aðgang að sem elskuð börn hans. Þetta var alveg magnaður boðskapur sem algerlega stenst það hvað Biblían segir. Eftir samkomu þegar flestir af þeim uþb 1000 manns sem voru á samkomunni voru farnar úr salnum gerðist undur nokkuð…SPENNT??? Lesið með opnum huga…

GULLRYK byrjaði að spretta fram í lófunum mínum!!! Ég get ekki úrskýrt það betur. Það byrjaði í hægri lófanum mínum og ég horfði á það dreifast um lófann, svo var smá líka á vinstri hönd en mun meira á þeirri hægri. Það glitraði svakalega fallega! Ég var ekki alveg að skilja þetta allt saman og prufaði að þurrka það til að draga allan efa um að ég væri rakur og þetta væri örugglega ekki sviti, en nei nei, ég var skráfþurr í lófanum. Þetta var magnað að horfa upp á það hvernig það jókst og jókst í höndunum á mér!! Þetta gerðist líka hjá mömmu og fleira fólki þarna úti. Heyrðu ekki nóg með það…Mamma tók slatta af þessu gulli með sér heim í bréfi og lét það á rannsóknarstofu strax og við lentum á þriðjudaginn, hún ákvað að segja ekki rannsóknarmönnunum hvar hún hafi fengið þetta gull. Þar var allur vafi tekinn um að þetta væri ekta.

Ef þetta hefði verið glimmer, pappírsrusl eða hvílíka, þá hefði það brunnið í fyrsta testinu, en viti menn… það brann ekki. Þá var þessu hent á líftæknistofnun í kelduhverfi í Grafarvogi og sett í rannsókn. Þar skoðaði maður þetta í smásjá og mamma einnig og svakalega var þetta fögur sjón sagði hún! Þessir kristallar voru kassalaga, en eins og allar brúnir hafi verið slípaðar af, eins og demantar, 4 saman og í þremur litum. Gulllitaðir, svartir og rauðir. Ja hérna, Guð var bara að gefa okkur smá sýnishorn úr sinni dýrð! Ég útskýri það bara sem “Manifestation of God´s glory” ekkert annað. OG SAGAN ER EKKI BÚIN…

Svo fer mamma heim til eyja og er á Aglow fundi í eyjum, sem er þverkirkjulegt samfélag kristinna kvenna. Þá í lofgjörðinni gerist þetta aftur hjá mömmu og konurnar verða forviða. Svo seinna í lofgjörðinni þá er gullið búið að aukast svo mikið að það byrjar að hrynja niður úr höndunum á mömmu og niður á gólf og á færurnar á henni…DÝRÐ SÉ GUÐI!!! Hann er sannlega að gera nýja hluti á Íslandi og er að staðfesta sig og dýrð sýna yfir fólki sínu. Það er ekkert sem við höfum til unnið sem höfum upplifað hvílíkt, heldur er þetta aðeins náð og kærleikur hans sem gefur allar góðar gjafir.

Þetta á í sjálfu sér ekkiert að koma á óvart þótt þetta sé spes að upplifa því Orð Guðs segir frá mörgum táknum og undrum, það er t.d minnst á það í postulasögunni: 5.kafla og 12.vers, 14:3 og 15:12 Guð er góður! Ef þú hefur upplifað tákn eða undur, kraftaverk eða lækningu í trúnni, þá væri gaman að fá viðbrögð frá þér hér á síðunni.

Megi Drottinn blessa þig! Kveðja. Gaui

www.blog.central.is/zulu

 

Nýjustu fréttir

Suðurlandsslagur í Eyjum
Kröfu um gæsluvarðhald hafnað
„60 milljónir eru þeim ofviða“
Vestmannaeyjar í fókus hjá bresku sjávarútvegsblaði
Eyjamaðurinn: Elís Þór
Miðflokkurinn býður fram í Eyjum
Kyrrðarbæn í dag
Tveir handteknir í tengslum við andlát
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.