Yfirlýsing vegna beiðni um hluthafafund í Vinnslustöðinni

Forráðamenn Stillu útgerðar hf., Línuskipa ehf. og KG fiskverkunar ehf., eigendur um þriðjungs hlutafjár í Vinnslustöðinni hf., hafa sent stjórnarformanni Vinnslustöðvarinnar beiðni um hluthafafund í félaginu til að fjalla um tiltekin málefni þess. Meðal annars er óskað eftir rannsókn á viðskiptum félagsins og einstakra stjórnenda, samningum við fyrirtæki  og viðskiptabanka. 

Umrætt erindi var boðsent stjórnarformanni Vinnslustöðvarinnar seint í gærkvöld og stjórninni hefur ekki gefist ráðrúm til að fjalla um það.  Aðstandendur erindisins kusu engu að síður að koma boðskap sínum á framfæri við fjölmiðla þegar í stað og reyndar höfðu ekki allir stjórnarmenn VSV fengið bréfið í hendur þegar um það var fjallað í Útvarpsfréttum í kvöld.  Augljóst er að aðstandendur erindisins birta það á þennan hátt í þeim tilgangi að gera stjórnendur og meirihlutaeigendur Vinnslustöðvarinnar tortryggilega með tilhæfulausum dylgjum sem felast bréfinu til stjórnar félagsins. Þeim aðdróttunum vísum við af gefnu tilefni til föðurhúsa.

Stjórn Vinnslustöðvarinnar mun að sjálfsögðu taka umrætt erindi fyrir og því verður síðan svarað á réttum vettvangi.  

Nýjustu fréttir

Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Handknattleiksdeild ÍBV með saltfisksölu í dag
Bókasafnið komið í hrekkjavökubúning
Bleikur blær og ABBA-tónar hjá Krabbavörn
Nýjar upplýsingar vörðuðu forsendur verðfyrirspurnarinnar
Eyjamenn geta haft úrslitaáhrif á fallbaráttuna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.