Um leið og ég fagna því að Árni Johnsen ásamt þingmönnum fjögurra flokka skuli hafa lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að prófessorsembætti kennt við Jónas Hallgrímsson verði stofnað, þá langar mig að varpa fram þeirri spurningu og biðja þá ágætu menn að velta fyrir sér, hvort ekki væri meira við hæfi að embætti þetta yrði stofnað við Háskólann á Akureyri en Háskóla Íslands eins og tillagan gerir ráð fyrir.
Jónas Hallgrímsson var jú Eyfirðingur eins og flestir vita og í dag á 200 ára afmæli Jónasar, er verið að opna minningarstofu um Jónas á fæðingarstað hans Hrauni í Öxnadal. Skemmst er að minnast að 16. júní síðastliðinn var fólkvangur í landi Hrauns, Jónasarvangur, vígður og fræðimannsíbúð opnuð að Hrauni.
Það væri því ekki síður við hæfi að prófessorsstaða sú sem tillaga er gerð um, verði við Háskólann á Akureyri sem er staðsettur svo gott sem í túnfæti fæðingarstaðar skáldsins. Auk þess má benda þessum ágætu þingmönnum á, að sú ráðstöfun væri sérlega viðeigandi í ljósi landsbyggðarpólitíkur.
Með bestu Eyjakveðjum frá Akureyri!
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst