2000 tonna kast hjá Guðmundi VE

Strákarnir um borð hjá Guðmundi VE duttu heldur betur í lukkupottinn í gær þegar þeir náðu 2000 tonna síldarkasti rétt fyrir utan Grundarfjörð. Þetta síldarkast þeirra á Guðmundi VE er líklega það stærsta á þessari vertíð. Júpíter náði ekki fyrir löngu síðan 1500 tonna kassti á sömu miðum.

Samkvæmt Þorbirni Víglundssyni sem bloggar af sjónum á vefnum www.123.is/tobbivilla þá var Hákon EA að bíða eftir því að fá að dæla hluta af þessu 2000 tonna kasti yfir til sína þegar Guðmundi hefði fyllt sig.

Kap Ve kastaði einnig á svipuðum stað og Guðmundur og voru þeir með kast yfir 1000 tonn.
Huginn VE er við löndun í Vestmannaeyjum og fara þeir aftur á miðinn strax og löndun líkur.

Einnig eru að landa í Vestmannaeyjum Sighvatur Bjarnason VE og Júpiter ÞH.
Gert er ráð fyrir því að Álsey VE 2 haldi á miðinn í dag.

Hægt er að fylgjast með áhöfnunum á eftirfarandi síðum:

Guðmundur VE: www.123.is/tobbivilla
Huginn VE: www.huginn.is
Álsey VE: www.123.is/alseyve2

Nýjustu fréttir

Eitt tilboð í Gjábakkakant – samið niður eftir opnun
Frábæru Íslandsmóti í sveitakeppni í Boccia lokið
Átta dagar og engin svör frá ráðherrum
Dýpkun gekk illa í morgun
Kjarnaborun hafin í Eyjum
Höfum áhrif – Framtíðin er í okkar höndum
Sex hópar frá FÍV tóku þátt í vörumessu í Smáralind
Spurt og svarað: Hannes Kristinn frá Sjálfstæðisflokknum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.