Aflaverðmæti jókst um 10,6% fyrstu átta mánuðina

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 57,9 milljörðum króna á fyrstu átta mánuðum ársins 2007 samanborið við 52,4 milljarða á sama tímabili 2006. Aukningin nemur 5,5 milljörðum króna eða 10,6% milli ára. Aflaverðmæti ágústmánaðar er óbreytt frá ágúst í fyrra 6 milljarðar. Aflaverðmæti botnfisks var í lok ágúst orðið 43 milljarðar miðað við 39,3 milljarða á sama tíma árið 2006 og er um 9,4% aukningu að ræða. Verðmæti þorskafla var 21,4 milljarðar og jókst um 18,2%.

Aflaverðmæti ýsu nam 9,4 milljörðum, sem er 22% aukning, og ufsaaflinn dróst saman að verðmæti um 10,8%, var 2,8 milljarðar króna. Verðmæti flatfiskafla dróst saman um 15,3%, nam 3,3 milljörðum króna.

Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 28,8% og nam 10,8 milljörðum. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem nam 4,2 milljörðum samanborið við 2,2 milljarða í fyrra og kolmunna að verðmæti 3 milljarðar samanborið við 3,5 milljarða 2006.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands var 25 milljarðar króna, sem er aukning um 5,3 milljarða eða 26,6%.

Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 15,2%, var 9,4 milljarðar.

Aflaverðmæti sjófrystingar var 16,5 milljarðar og dróst saman um 5,5% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 5,8 milljörðum sem er 3,5% aukning.

Sjá nánar á VEF Hagstofunnar.

 

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.