Undirskriftarlistinn

Þætti gaman að vita hver stendur á bakvið undirskriftarlistann sem nú liggur frammi í verslunum hér í bæ. Þar sem skorað er á bæjaryfirvöld að láta fara fram kosningu um Bakkafjöru. Sá listann í Vöruval og þar voru nokkrir búnir að skrifa undir.

Hverjir eru sérfræðingarnir sem hrópa hvað hæst gegn Bakkafjöru? Ég hef hitt fólk sem er á móti Bakkafjöru. Eins hef ég hitt fólk sem er fylgjandi Bakkafjöru. En enginn af þeim sem ég hef hitt hefur byggt eina einustu höfn.

Hvar eru þeir sem byggt hafa hafnir á Íslandi? Það voru meira að segja virtir fræðingar sem hrópuðu úlfur, úlfur þegar talað var um Hvalfjarðargöng. Fagmenn sem töluðu um mesta verkfræðislys Íslandssögunnar. Þessir menn þurftu að taka aftur stóru orðin. Þeir sem berjast nú á móti Bakkafjöru hafa enga slíka sérfræðinga með sér í liði. Segir það ekki eitthvað?

Framfarir hafa alltaf verið umdeildar. Menn eru hræddir við það ókunna. Ég get ekki sagt hér og fullyrt að Bakkafjara verði brjálæðisleg bylting fyrir okkur. En ég get heldur ekki sagt að hún verði fáránlegt flopp…Ég treysti einfaldlega á þá sem hafa VIT á því að byggja hafnir.

Ég stend enn við það að við þurfum engar kosningar. Við kláruðum þær í síðustu bæjarstjórnarkosningum.

Eyjamenn hafa síðasta áratuginn verið að spá í bættum samgöngum. Síðustu ár hafa farið í það að skipta Vestmannaeyingum í þrjár fylkingar. Jarðgangasinnar, Bakkafjörusinnar og Þorlákshafnarsinnar. Þegar jarðgöngin voru blásin af skiptust Eyjamenn í tvo hópa. Það er komið nógu langur tími í að bíða og ræða hlutina. Nú er tími framkvæmdanna…..í Bakkafjöru.

Stundum held ég að stór hluti Eyjamanna þjáist af valkvíða…

En það er kannski bara í hugarheimi mínum.

 http://svenko.blog.is/blog/svenko/

 

Nýjustu fréttir

Eyjarnar lönduðu 69 tonnum eftir stutta túra vegna brælu
Skráningarfrestur á atvinnulífssýningu Uppsprettu Suðurlands framlengdur
Sundlaugin lokuð vegna viðhalds – útisvæðið áfram opið
Þetta er mögnuð íþrótt sem allir geta spilað
Bærinn ósammála ráðuneytinu í þremur uppsagnarmálum
Bleikt boð hjá Krabbavörn Vestmannaeyja
Smári Jökull hjá Sýn 
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum? Ráðherra tekur jákvætt í hugmyndina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.