Þriðji bruninnn á skömmum tíma

Slökkvilið Vestmannaeyja fékk tilkynningu kl 15:33 um að eldur væri laus við Tangagötu í Vestmannaeyjum, þegar að var komið var stóðu eldtungur upp úr þakinu á suðurhluta hússins og er komið í ljós að eldurinn logaði á lofti í geymslu á einum enda hússins. Eldurinn komst hvorki í Veiðafærageymslunna né Kaffi Kró sem er í norðuhluta hússins. Grunur er um íkveikju en ekkert rafmagn var í geymslunni.Slökkvilið Vestmannaeyja var fljótt á staðinn og tókst strax að ná tökum á eldinum.

Þetta er þriðji bruninn á skömmum tíma í Vestmannaeyjum en nýlega hefur slökkvililiðið þurft að slökkva elda bæði á Hilmisgötu og Vesturvegi.

Hér er hægt að skoða myndir frá brunanum

Nýjustu fréttir

Malbikað víða um bæ – myndasyrpa
Átta marka tap hjá ÍBV gegn Val
ÍBV tryggði sér þriðja sætið með sigri á Stjörnunni
Sjálfkeyrandi bílar í Eyjum – af hverju ekki?
Ofsaveður setti svip sinn á haustrall Breka
Malbik, hraun og list í Eyjum
Þak sett á afslátt Loftbrúar
Brattir þrátt fyrir bræluna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.