Tónleikar á Prófastinum á Föstudaginn

Jan Mayen, Hoffman & Æla spila á tónleikum sem haldnir verða föstudaginn 23. nóvember. Þessar hljómsveitir hafa vera að spila saman á síðustu misserum um allt land með góðum árangri og nú fá Vestmannaeyingar tækifæri á að upplifa gott rokk. Árni Óli Ólafsson stendur fyrir þessum tónleikum og segist hann vera að kanna grundvöllinn fyrir því hvort sé hægt að halda tónleika sem þessa með reglulegu millibili en það er einungis hægt ef að fólk lætur sjá sig á svona viðburðum en Árni Óli er bjartsýnn og veit að Eyjamenn muni ekki láta sig vanta á þessa tónleika og ef að dæmið gengur upp, þá er fleirra í pípunum hjá mér, segir Árni Óli

Tónleikarnir verða haldnir á Prófastinum Föstudaginn 23.nóvember og byrjar fjörið kl.23:00. Það er 18 ára aldurstakmark og kostar aðeins 1.000 kr inn.

Þess má einnig geta að Hoffman er að gefa út lagið “Jukebox Girl” sem verður á safnplötunni “oj ertu með krabbamein” sem samtökin Kraftur gefa út þann 8. Desember. Kraftur eru samtök ungs fólks sem þjást af krabbameini og mun allur ágóði plötunnar “oj ertu með krabbamein” renna beint til samtakanna.

Nýjustu fréttir

Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum
Lækkandi ölduhæð og Álfsnesið á leiðinni
Spurt og svarað: Erlingur frá Eyjalistanum
Sandra náði áfanga með íslenska landsliðinu
Með fullfermi eftir örstutta túra
Friðrik Dór mætir á Þjóðhátíð
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
40 ára aldursmunur á vinningshöfum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.