SPARISJÓÐSMÓT Vestmannaeyja fór fram um síðustu helgi í Skáksetrinu í Eyjum og var með tvískiptu sniði. Fyrri daginn, föstudaginn 23. nóvember sl., var haldið níu umferða hraðskákmót þar sem 34 keppendur tóku þátt. Alþjóðlegi meistarinn Stefán Kristjánsson bar örugglega sigur úr býtum en hann fékk fullt hús vinninga. Kollegi Stefáns, Sævar Bjarnason, fékk 8 vinninga og lenti í öðru sæti en Einar Kr. Einarsson fékk bronsið með 7 vinninga. Af 10-13 ára keppendum fengu Nökkvi Sverrisson og Kristófer Gautason flesta vinninga eða 5½ en Róbert Aron Eysteinsson, Sigurður Arnar Magnússon og Jörgen Freyr Ólafsson fengu flesta vinninga þeirra sem voru yngri en 10 ára eða 5 v. Í síðara hluta mótsins, atskákhlutanum, sem fram fór laugardaginn 24. nóvember sl., varð Davíð Kjartansson hlutskarpastur en hann fékk 6 vinninga af 7 mögulegum. Stefán Bergsson og Einar Kr. Einarsson deildu með sér öðru sætinu með 5½ vinning en Rúnar Berg hreppti fjórða sætið með fimm vinninga. Af unglingum mótsins fékk Kristófer Gautason flesta vinninga eða 4½. Nánari upplýsingar um mótið er að finna á heimasíðu Taflfélags Vestmanneyja, http://skak.eyjar.is/.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.