Kristján segir það bagalegt að skipið hafi þurft að fara í slipp. Hver voru viðbrögð hans ráðuneytis og stofnana? Að skilja svoleiðis við þetta að ekkert kom í staðinn. Jú, Selfoss á að sigla hingað á morgun…
Annars var ég að lesa yfir þessar fimm bloggfærslur um fréttina sem voru komnar þegar þetta er skrifað. Það er þetta venjulega, einn talar um fanganýlendu, annar um að flytja alla Eyjamenn bara vestur á firði !!! og sá þriðji telur Eyjamenn ekki með öllum mjalla að ætlast til að fá nýtt skip og Bakkafjöru…
Samgöngur í dag eru í ólestri. Um það snýst málið. Ekki um Bakkafjöru.
Svo skulum við alveg hafa það á hreinu að það gæti hreinlega verið ódýrara fyrir ríkið að selja núverandi Herjólf og leigja skip þar til Bakkafjara er tilbúinn.
Ég hef fengið mikil viðbrögð við síðustu færslu um umburðarlyndið. Heyrist á fólki að það sé orðið langþreytt á ástandinu.
En hvað er til ráða?
Við getum ekki látið það yfir okkur ganga að þetta sé nógu andskoti gott handa okkur. Við eigum miklu meira skilið frá þessum háu herrum í höfuðborginni.
Eyjamenn hafa ekki verið og verða ekki þurfalingar á þjóðinni.
Við eigum betra skilið.
http://svenko.blog.is/blog/svenko/
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.