Grunur um íkveikju í Eyjum

Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum leikur grunur á að um íkveikju hafi verið að ræða þegar kviknaði í gamla Fiskiðjuhúsinu í Vestmannaeyjum í nótt. Tilkynnt var um eldinn um klukkan hálf fjögur í nótt en þegar slökkvilið kom á vettvang reyndist eldurinn ekki mikill þó að talsverður reykur hafi myndast. Vitað er til þess að ungmenni voru í húsinu í gærkvöldi en húsið hefur verið notað meðal annars til hljómsveitaræfinga undanfarin misseri. Rannsóknardeild lögreglunnar í Vestmannaeyjum vinnur að rannsókn á upptökum eldsins, en ekki er talið útilokað að eldurinn sé af mannavöldum. Brunar af völdum íkveikju hafa verið algengir í Vestmannaeyjum á síðustu sjö árum. Frá árinu 2000 og til dagsins í dag er talið að allt að fjórtán bruna megi rekja til íkveikju.
Margir þessara bruna hafa átt sér stað í desember en í fyrra kviknuðu fjórir eldar sem rekja má til íkveikju í mánuðinum. 4. desember var kveikt í kaffistofu Lifrarsamlagsins. Það var í fjórða skiptið sem reynt var að kveikja í því húsnæði á fimm árum. 16. desember var kveikt í þró við fiskimjölsverksmiðju Ísfélagsins. Eldurinn var mjög mikill en slökkviliðið náði að ráða niðurlögum eldsins í tæka tíð. Litlu munaði að illa færi því nokkur tonn af ediksýru voru í húsinu. Stuttu síðar sama kvöld var reynt að kveikja í húsnæði Fiskiðjunnar skammt frá. Maður sem átti leið inn í húsið slökkti eldinn með slökkvitæki. Á þriðja degi jóla eða 27. desember var síðan kveikt í geymslugámi við Skipalyftuna og eyðilagðist allt sem var inni í gámnum.
Íbúar í Vestmannaeyjum eru margir hverjir ókyrrir vegna eldanna sem virðast endurtaka sig í sífellu í skjóli myrkurs á veturna. 

Nýjustu fréttir

Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.