Nýta sér ekki kauprétt í Vinnslustöðinni

Ísfélag Vestmannaeyja hf. og Kristinn ehf. hafa ákveðið að hafna því að nýta sér kauprétt að eignarhlutum í Vinnslustöðinni hf., sem eru í eigu Stillu ehf. og tengdra félaga í eigu bræðranna Guðmundar og Hjálmars Kristjánssona.

Gerður var kaupréttarsamningur 24. nóvember en frestur til
að nýta kaupréttinn var til kl. 16 í dag.

Hlutur þeirra Guðmundar og Hjálmars Kristjánssona í Vinnslustöðinni nemur um 32% af heildarhlutafé. Fram kom hjá Gunnlaugi Sævari Gunnlaugssyni, stjórnarformanni Ísfélagsins, í nóvember, að  kaupréttarsamningurinn væri háður því að fjármögnun fáist, einnig því að nýju félagi í eigu Ísfélagsins og Kristins takist að tryggja sér 35% hlutafjár og að lokum því að samkomulag náist við meirihlutaeigendur og stjórnendur Vinnslustöðvarinnar um rekstur félagsins.

Mikil læti urðu í kringum eignarhald á Vinnslustöðinni í sumar þegar þeir Guðmundur og Hjálmar gerðu yfirtökutilboð í félagið en urðu undir í baráttu um það við Eyjamenn ehf. sem reyndar buðu töluvert lægri upphæð.

Nýjustu fréttir

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.