Ísfélag Vestmannaeyja hf. og Kristinn ehf. hafa ákveðið að hafna því að nýta sér kauprétt að eignarhlutum í Vinnslustöðinni hf., sem eru í eigu Stillu ehf. og tengdra félaga í eigu bræðranna Guðmundar og Hjálmars Kristjánssona.
Gerður var kaupréttarsamningur 24. nóvember en frestur til
að nýta kaupréttinn var til kl. 16 í dag.
Hlutur þeirra Guðmundar og Hjálmars Kristjánssona í Vinnslustöðinni nemur um 32% af heildarhlutafé. Fram kom hjá Gunnlaugi Sævari Gunnlaugssyni, stjórnarformanni Ísfélagsins, í nóvember, að kaupréttarsamningurinn væri háður því að fjármögnun fáist, einnig því að nýju félagi í eigu Ísfélagsins og Kristins takist að tryggja sér 35% hlutafjár og að lokum því að samkomulag náist við meirihlutaeigendur og stjórnendur Vinnslustöðvarinnar um rekstur félagsins.
Mikil læti urðu í kringum eignarhald á Vinnslustöðinni í sumar þegar þeir Guðmundur og Hjálmar gerðu yfirtökutilboð í félagið en urðu undir í baráttu um það við Eyjamenn ehf. sem reyndar buðu töluvert lægri upphæð.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.