Áttum margrar ógleymanlegar stundir með vinum og fjölskyldum sem að eru fjársjóður okkar í lífinu.

Við á eyjar.net sendum út á nokkurn hóp eyjamanna tvær spurningar til að forvitnast hvernig árið 2007 hefði verið og hvort að einhverjar væntingar væri til ársins 2008. Í dag birtum við svör Vigdísar Rafnsdóttur.

Hvernig var árið 2007 fyrir þig og fjölskyldu þína?
Árið 2007 var með bestu árum sem ég hef lifað, margir merkir áfangar náðust í lífi okkar og er ég Guði þakklát fyrir það
Ferðuðumst með okkar bestu vinum  í heimi þeim Óla og Emmu Vídó í heimsókn til Eiríks og Siggu í Litháen ógleymanlegt og svo kostaði  það ekkert!!!!!!!!!

Við Guðni náðum þeim merka áfanga að fagna 30 ára brúðkaupsafmæli og hann varð 50 ára á árinu og af þessum tilefnum ferðuðumst við mikið erlendis fórum til Danmerkur,Tyrklands Bandaríkjanna og í siglingu í Karabískahafið.

Ákváðum að njóta stundanna í dag, því við vitum ekki hvað seinna verður.
Stelpunum okkar vegnaði mjög vel á árinu og erum við mjög stoltar af þeim,yngri dóttir okkar Alma trúlofaðist góðum dreng Sigurði Stein í júní og útskrifaðist sem sjúkraliði í desember sl.
hjá eldri dótturinni  Björk urðu kaflaskipti í lífinu,  flutti á Suðurnesin ásamt því að vera að klára að ná sér í kennsluréttindi , hún kom mikið í heim til Eyja sl.ár okkur til mikilla gleði.

Auk þess átum við góðar stundir saman í Englandi í sept. sl. með þeim og frænkum okkar þeim Guðnýju og Ármeyju.
Áttum margrar  ógleymanlegar stunda með vinum og fjölskyldum sem að eru fjársjóður okkar í lífinu.

Hvaða væntingar hefurðu til ársins 2008 fyrir þig og fjölskyldu þina?
Væntingar mínar eru að við verðum öll við góða heilsu og lifum í sátt við okkur sjálf og aðra.

 

Nýjustu fréttir

Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.