Vigdís Hind syngur lag eftir Mika

Eyjar.net hafa fengið í hendurnar myndband með ungri söngkonu frá eyjum. Söngkona þessi heitir Vigdís Hind og er dóttir Gísla Foster og Ingibjargar Heiðdal. Vigdís Hind tók sjálf upp myndbrotið en samkvæmt heimasíðu Gísla http://fosterinn.blog.is þá finnst Vigdísi Hind gaman að taka upp alls kyns myndbrot á myndavél fjölskyldunnar. Þetta myndband útbjó hún þegar Vigdís var nývöknuð og var að leika sér við tölvu fjölskyldunnar. Myndbandið fannst svo fyrir tilviljun þegar verið var að kópara myndir af vélinni í tölvuna. Vigdís Hind er greinilega framtíðarsöngkona okkar eyjamanna.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.