Í gær opnaði flugeldamarkmaður Björgunarfélags Vestmannaeyja við Faxastíg en flugeldasalan er stærsta fjáröflun Björgunarfélagsins. Björgunarfélagið er öflugt félag á landsvísu en félagið á og rekur björgunarbátinn Þór sem er eitt alöflugast björgunarskip landsins. Rekstur félagsins er að stórum hluta byggður á flugeldasölunni og er hún undirstaðan í rekstri félagsins og tryggir Björgunarfélaginu þann búnað og þjálfun til þess að bjarga mannslífum þegar þannig ber undir.
Eyjar.net sendu nokkrar spurningar á Adólf Þórsson formann Björgunarfélags Vestmannaeyja varðandi flugeldamarkaðinn við Faxastíg.
Nú opnaði í gær flugeldamarkaður Björgunarfélagsins við Faxastíg og er flugeldasala ein af ykkar fjáröflunum, hversu mikilvæg er þessi fjáröflun fyrir félagi?
Hún er undirstaða fyrir rekstur félagsins og allt starf á hennar vegum. Svo sem rekstur á björgunarbátnum Þór og allt nýliðastarf á vegum Björgunarfélagsins.
Hverjar eru helstu nýjungar á flugeldamarkaðnum í ár?
Það eru blævængsterturnar og einnig er fjölgun í kappatertum. Einnig er komin sérstök áramótabomba sem er stór raketta til að skjóta upp á miðnætti.
Hvaða breytingar hafa orðið á þróun flugeldasíðustu ár?
Sala á rakettum hefur minkað enn sala á tertum og gosum hefur stóraukist.
Hvernig er opnunartími flugeldasölunnar?
Það er opið
29 des. 10-21
30 des 10-21
31 des 09-16
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst