Magnús eignast Skorra

Magnús Kristinsson, athafnamaður og stjórnarformaður Toyota á Íslandi, hefur keypt rafgeymafyrirtækið Skorra sem áður var í eigu Arnar Johnsen. Fram kemur í tilkynningu að Örn hafi stofnað fyrirtækið árið 1978 og starfrækti þá bæði rafgeymasölu og ofnaverksmiðju að Ármúla 28 Árið 1985 var fyrirtækið flutt að Laugavegi 180 og ofnaframleiðslan lögð niður. Það flutti svo […]

Hvað með ferðamannaiðnaðinn?

Mér þykir afar vænt um Vestmannaeyjar, einn góðan veðurdag langar mig til að flytja þangað og búa mér og fjölskyldu minni heimili. Ég veit að það verður ekki alveg á næstunni, en það mun koma að því. Ég lít framtíð eyjanna björtum augum enda hefur jákvæðnin einkennt samfélagið þar undanfarin misseri og menn sjá tækifæri […]

Magnús eignast Skorra

Magnús Kristinsson, athafnamaður og stjórnarformaður Toyota á Íslandi, hefur keypt rafgeymafyrirtækið Skorra sem áður var í eigu Arnar Johnsen. Fram kemur í tilkynningu að Örn hafi stofnað fyrirtækið árið 1978 og starfrækti þá bæði rafgeymasölu og ofnaverksmiðju að Ármúla 28 Árið 1985 var fyrirtækið flutt að Laugavegi 180 og ofnaframleiðslan lögð niður. Það flutti svo […]

Hvað með ferðamannaiðnaðinn?

Mér þykir afar vænt um Vestmannaeyjar, einn góðan veðurdag langar mig til að flytja þangað og búa mér og fjölskyldu minni heimili. Ég veit að það verður ekki alveg á næstunni, en það mun koma að því. Ég lít framtíð eyjanna björtum augum enda hefur jákvæðnin einkennt samfélagið þar undanfarin misseri og menn sjá tækifæri […]

Leikskólahúsnæði verulega ábótavant

Minnihlutinn í sveitarstjórn Rangárþings eystra óskar eftir því að meirihluti sveitarstjórnar hraði verulega allri skipulags- og hönnunarvinnu fyrir nýjan leikskóla á Hvolsvelli. Þeir segja húsnæðismálum leikskólans Arkar á Hvolsvelli verulega ábótavant. Tvær deildir leikskólans séu í bráðabirgðahúsnæði sem sé ekki vænlegt fyrir börn. (meira…)

Staðsetning gestastofu ákveðin

Sveitarstjórn Skaftárhrepps hefur lagt til að gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs verði reist á svæðinu sunnan Klausturvegar á Kirkjubæjarklaustri. Stjórn þjóðgarðsins óskaði eftir tillögu að staðsetningu vegna arkitektasamkeppni sem þeir vilja hleypa af stokkunum fljótlega. (meira…)

Samtök atvinnulífsins gagnrýna jafnréttisfrumvarp harðlega

Samtök atvinnulífsins gera alvarlegar athugasemdir við fjölmörg atriði stjórnarfrumvarps til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla en frumvarpið er nú til meðferðar á Alþingi. Segja SA m.a., að Jafnréttisstofu sé í frumvarpinu veitt opin heimild til gagnasöfnunar og fyrirtæki geti af minnsta tilefni verið skylduð til að leggja fram mikið magn […]

Féló í fjórða sæti

Stíll var haldinn 17. nóvember sl. í Kópavogi. Stíll er keppni þar sem keppt er í hárgreiðslu, förðun og fatahönnun. Markmið Stíls er að hvetja unglinga til listsköpunar og um leið gefa þeim aukin tækifæri til frumlegrar hugsunar og sköpunarhæfileika, vekja jákvæða athygli á því hvað unglingar eru að gera á sviði sköpunar og gefa […]

Vélavarðanám í FÍV í síðasta sinn

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum hyggst bjóða upp á nám vélavarða á vorönn 2008. Líklega verður þetta í síðasta sinn sem námið verður í boði í þessari mynd en framundan eru breytingar á námi vélstjóra og verða minnstu réttindin 750 kW en vélavörður hefur réttindi fyrir 375 kW. Enn vantar nokkrar skráningar til að hægt verði að […]

Eigandinn telur víst að eldur hafi verið borinn að húsinu

Sigurmundur Gísli Einarsson, eigandi Tangahússins telur nokkuð öruggt að kveikt hafi verið í húsinu í gær. Þetta sagði hann í samtali við blaðamann og bætti því við að fátt hefði getað komið eldinum af stað þar sem hann blossaði upp. Einn slökkviliðsmaður slasaðist eftir að slökkviliðið hafði náð tökum á eldinum og var hann fluttur […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.