Gunnar Heiðar inn í leikmannahópinn

Gunnar Heiðar Þorvaldsson er í leikmannahópi íslenska landsliðsins sem mætir því skoska á Laugardalsvellinum klukkan 18.30 í dag. Gunnar Heiðar var ekki í leikmannahópnum þegar liðið mætti Norðmönnum ytra á dögunum en tekur nú sæti Keflvíkingsins Guðmundar Steinarssonar, sem einmitt kom inn á gegn Norðmönnum. Byrjunarlið Íslands er annars óbreytt. (meira…)

�?eir gerðu góðan veg vondann!

Þeir sem aka Eyrarbakkaveg hafa eflaust fundið fyrir nýlegri yfirlögn á u.þ.b. 2 km. kafla ofan við þorpið. Áður en en til þessara endurbóta kom var vegurinn hinn prýðilegasti en nú eftir þessar endubætur er vegkaflinn orðinn að ómögulegri svartri vegklessu. Í lok júlí hóf vegavinnuflokkur sína fyrri tilraun til vegbóta með olíumalarklæðningu sem molnaði […]

Nýtt fyrirtæki, Mýrdalssandur ehf.

Nýtt fyrirtæki, Mýrdalssandur ehf., hóf rekstur í Mýrdalshreppi á líðandi sumri og er aðalstarfsemi þess að þurrka sand til sandblásturs. Vinnslulína Mýrdalssands (sem þykir sérstakt augnayndi) og stendur vestan undir iðnaðarhúsi VíkurHúsa að Sunnubraut 21 í Vík og sendir frá sér gufubólstra þegar vinnsla er í gangi. (meira…)

Neytendatúr Björgvin G. Sigurðssonar um landið byrjaði á Selfossi í gær

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra mun á næstu tveimur vikum efna til funda víðs vegar um landið þar sem fjallað verður um neytendamál. Fundaröðin sem nefnist Neytendatúr” hófst með fjölmennum fundi í gærkveldi á heimavelli ráðherra í Tryggvaskála á Selfossi. Fylgdarlið og ræðumenn með viðskiparáðherra á Selfossfundinum voru: “ (meira…)

37 ára karl kærður fyrir að nauðga 13 ára stúlku

37 ára gamall karlmaður frá Eyrarbakka var handtekinn um helgina vegna gruns um að hann hafi notfært sér ölvunarástand 13 ára gamallar stúlku og haft við hana samræði. Maðurinn bauð stúlkunni og vinkonum hennar í samkvæmi á heimili sínu. Í samkvæminu var áfengi haft um hönd og fór maðurinn meðal annars í heitan pott ásamt […]

Hermann er stríðsmaður

George Burley og lærisveinar hans í skoska landsliðinu eru undir mikilli pressu fyrir leikinn við Ísland í kvöld í undankeppni HM í knattspyrnu eftir óvænt tap gegn Makedóníu á laugardaginn. „Við vitum hvernig við ætlum að spila á móti Íslendingum. Þeir spila allt öðru vísi en Makedónar, og eru líkari breskum liðum. Þar að auki […]

Vetrarstarf Jórukórsins að hefjast

Á Selfossi starfar kvennakórinn Jórur undir stjórn Hlínar Pétursdóttur. Þær hittast einu sinni í viku og syngja saman. Sönglagavalið hjá þeim er fjölbreytt en þó frekar í léttari kantinum. Jórurnar hvetja allar áhugasamar konur að koma og kynna sér kórstarfið. Æfingar eru kl. 20 alla miðvikudaga í sal Karlakórs Selfoss að Gagnheiði 40 á Selfossi […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.