Saga Huld og Albert valin best

Í kvöld fór fram sumarlokahóf ÍBV-íþróttafélags en þá koma félagsmenn, íþróttamenn og forráðamenn saman til að loka sumarvertíðinni. Hápunktur kvöldsins var verðlaunaafhending meistaraflokkanna. Saga Huld Helgadóttir var valin best hjá kvennaliði ÍBV og Kristín Erna Sigurlásdóttir var valin efnilegust en hún var einnig markahæst. Albert Sævarsson var valinn bestur í karlaliðinu, Þórarinn Ingi Valdimarsson efnilegastur […]

Sr. Sveinn Valgeirsson valinn

Valnefnd í Eyrarbakkaprestakalli, Árnesprófastsdæmi, ákvað á fundi sínum þann 9. október síðastliðinn að leggja til að sr. Sveinn Valgeirsson, verði ráðinn sóknarprestur í Eyrarbakkaprestakalli. Níu umsækjendur voru um embættið. Tveir drógu umsókn sína til baka. Embættið veitist frá 1. nóvember næstkomandi. Biskup Íslands skipar í embættið til fimm ára að fenginni umsögn valnefndar. Valnefnd skipa […]

Við keyrum verðið niður

Síðustu dagar hafa verið erfiðir fyrir marga einstaklinga og fyrirtæki. Krónan sveiflast hratt upp og niður, matvaran hækkar, lánin hækka og allt virðist vera á leið á versta veg. En ekkert er svo illt að ei boði gott. Í morgun var opnaður vefurinn www.finnalén.is. Finnalén.is var stofnað með þeim tilgangi að auka samkeppni á .is […]

Ekki fyrirhugað að fresta framkvæmdum

Vegna þess árferðis sem nú ríkir á Íslandi hafa mörg sveitarfélög hætt við framkvæmdir sem fyrirhugað var að fara í. Þannig hætti Akureyrarbær t.d. við uppbyggingu á knattspyrnusvæðis KA en jarðvinna hófst tveimur dögum áður en ákvörðunin var tekin. Í Vestmannaeyjabæ hefur verið tekin ákvörðun um nokkrar framkvæmdir, m.a. nýtt knattspyrnuhús, uppbygging útisvæðis við sundlaugina […]

Foo Fighters í hart við John McCain

Íslandsvinurinn Dave Grohl og félagar í bandarísku rokkhljómsveitinni Foo Fighters hafa bannað John McCain, forsetaefni Repúblikanaflokksins, að nota lagði „My Hero“ í kosningabaráttu sinni. Rokkararnir segja að þetta setji blett á lagið og sé algjörlega óviðeigandi. Þeir segja að McCain hafi notað lagið í kosningabaráttunni án þeirra samþykkis. Talsmaður repúblikana segir hins vegar að flokkurinn […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.