�?að þarf nú meira til að raska taktinum í mér

Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, dvelur enn á sjúkrahúsi eftir að hafa velt bíl sínum við Litlu kaffistofuna síðastliðið föstudagskvöld. Árni hefur nýtt dvölina á sjúkrahúsinu vel, því hann skellti sér einnig í reglulega skoðun á hjartadeild á dögunum. (meira…)

Hafa hækkað um 50% á þremur árum

Afsláttarkort í Herjólf hefur hækkað um tæp 50% á aðeins þrem­ur árum. Þann 23. janúar 2007 keypti Óskar Elías Óskarsson, íbúi í Vestmannaeyjum, af­sláttarkort á 14.400 krónur. Þremur árum síðar og þremur dögum betur, keypti Óskar aftur afsláttarkort en nú á 21.560 krónur og nemur hækkunin 49,7%. Á sama tímabili, frá jan­úar 2007 til janúar […]

Tapið 600 milljónir

Á fjölmennum fundi í Höllinni í síðustu viku, þar sem blásið var til sóknar gegn fyrningarleið í sjáv­arútvegi, útflutningsálagi á ísfisk, afnámi sjómannaafsláttar og aðför að landsbyggðinni, komu fram at­hyglisverðar tölulegar upplýsingar um hversu miklir hagmunir eru í húfi fyrir Vestmannaeyjar þegar breytingar eru gerðar á fiskveiði­stjórn­unarkerfinu. Getur það skipt hundruðum milljóna þó aðgerðirnar láti […]

Enn hægt að nálgast sæti í beint flug til Akureyrar

Enn er hægt að nálgast laus sæti í beint flug milli Vestmannaeyja og Akureyrar en boðið verður upp á flugið helgina 12. til 14. febrúar næstkomandi. Farið kostar 18.130 krónur fram og til baka með sköttum. Akureyri hefur margt upp á að bjóða, skíði, leikhús þar sem Leikfélag Akureyrar sýnir 39 þrep og á Akureyri […]

Eyjakona opnar vefsíðu um heilsu barna

Eyjakonan Hrund Scheving opnaði á dögunum nýja vefsíðu, www.léttariæska.is en vefurinn hefur að geyma upplýsingar, ráð og fróðleik fyrir foreldra sem vilja huga vel að heilsu barna sinna og koma í veg fyrir ofþyngd þeirra. Ofþyngd barna hefur aukist í hinum vestræna heimi og er Ísland ekki undanskilið því en síðunni er ætlað að aðstoða […]

Nokkuð harður árekstur í morgun

Nokkuð harður árekstur varð í morgun á gatnamótum Illugagötu og Kirkjuvegar. Áreksturinn varð með þeim hætti að fólksbíll, sem var að beygja yfir gatnamótin til austurs, var ekið í veg fyrir jeppa sem var að fara yfir gatnamótin, niður Illugagötuna. Fólksbíllinn skemmdist nokkuð og var óökufær á eftir en engin slys urðu á fólki. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.