Eyjamenn ætla að tjalda öllu sem þeir eiga

Eins og áður hefur komið fram, verður stórleikur á morgun, laugardag í 1. deild karla þegar Selfyssingar koma í heimsókn. Eyjamenn eiga harma að hefna eftir ósanngjarnt tap fyrir Selfyssingum þegar liðin mættust síðast í Eyjum þar sem dómarapar leiksins var full mikið áberandi. Til að auka stemmninguna hefur ÍBV ákveðið að allir þeir sem […]
Margoft verið varað við ofveiði
Alþingi samþykkti á mánudag frumvarp sjávarútvegsráðherra sem meðal annars heimilar veiðar á skötusel gegn gjaldi. Lögin hafa verið mjög umdeild meðal útvegsmanna ekki síst vegna þess að veiðiheimildir í skötusel voru skertar um 500 tonn á yfirstandandi fiskveiðiári. Nú er ráðherra heimilt að úthluta 2000 tonnum á fiskveiðiárinu 2009 til 2010 og einnig 2010 til […]
Eyjapeyjar eiga harma að hefna gegn Selfossi

Á morgun, laugardag klukkan 13.30 leikur karlalið ÍBV mikilvægasta leik sinn í vetur þegar Selfyssingar koma í heimsókn. Selfoss er í efsta sæti 1. deildar sem gefur sjálfkrafa þátttökurétt í úrvalsdeild að ári. Lið í 2. til 4. sæti leika um eitt laust sæti í efstu deild ásamt liðinu í næstneðsta sæti í úrvalsdeild. Enn […]
Íslandsmót barna haldið í Vestmannaeyjum um helgina

Um helgina var haldið Íslandsmót barnaskólasveita, fyrir börn fædd 1997 og síðar, í Smáralindinni í Reykjavík. Til stóð að senda þrjár sveitir til leiks frá Eyjum en vegna óveðurs sem gekk yfir Eyjarnar á sunnudagsmorguninn, var hætt við að senda börnin með Herjólfi. Hins vegar náðist að smala saman í eina sveit þar sem nokkrir […]
Siglingar munu hefjast 1. júlí

Framkvæmdir við Landeyjahöfn í Bakkafjöru eru langt á veg komnar enda voru á þriðjudag aðeins 100 dagar í að höfnin opni og ferjusiglingar hefjist. Um miðjan maí á þessu ári var fyrsta hlassinu sturtað niður í fjöruna fyrir brimvarnargarðana, sem nú eru svo til klárir. Framkvæmdir eru hafnar fyrir sjálft ferjulægið og farþegaaðstöðu í fjörunni […]
Gunnar Heiðar aftur af stað eftir meiðsli
Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék í fyrradag með varaliði enska knattspyrnuliðsins Reading eftir að hafa verið frá vegna nárameiðsla í tvær vikur. Gunnar fór vel af stað en hann skoraði mark, krækti í vítaspyrnu, sem og í aukaspyrnu sem skorað var úr, þegar Reading lagði Sailsbury að velli, 4:3. Gunnar hefur vegna meiðslanna misst af tækifæri […]