Framkvæmdir við Landeyjahöfn í Bakkafjöru eru langt á veg komnar enda voru á þriðjudag aðeins 100 dagar í að höfnin opni og ferjusiglingar hefjist. Um miðjan maí á þessu ári var fyrsta hlassinu sturtað niður í fjöruna fyrir brimvarnargarðana, sem nú eru svo til klárir. Framkvæmdir eru hafnar fyrir sjálft ferjulægið og farþegaaðstöðu í fjörunni og uppgræðsla á sandinum hefur gengið vel.