Godthaab gerir það gott

Mikið hefur verið um að vera hjá fiskvinnslufyrirtækinu Godthaab í Nöf í Vestmannaeyjum, en í dag er fyrsti vinnudagur í nýju húsnæði fyrirtækisins. Þar snýst allt um makríl þessa dagana. „Það er búið að vera líf og fjör í allt sumar,“ segir framkvæmdastjórinn Jón Ólafur Svansson. (meira…)

Fór holu í höggi í gær

Huginn Helgason, knattspyrnuþjálfari og hreinsitæknir náði draumahöggi allra kylfinga í gær þegar hann fór holu í höggi. Draumahögginu náði hann á 12. braut á golfvellinum í Vestmannaeyjum en til verksins brúkaði hann 7-járn. 12. brautin er par þrjú braut og 142 metra löng frá gula teignum, þar sem Huginn og félagi hans, Ragnar Hilmarsson slógu […]

Tökur á Djúpinu að hefjast

Baltasar Kormákur og fyrirtæki hans Sögn ehf hefja brátt tökur á nýrri kvikmynd, sem kallast DJÚPIÐ. Um er að ræða leikna bíómynd sem byggir á sannsögulegum atburðum frá árinu 1984 þegar Hellisey VE fórst nálægt Vestmannaeyjum og Guðlaugi Friðþórssyni tókst með undraverðum hætti að halda lífi, eins og alþekkt er. (meira…)

Fyrsta ferðin á þriðjudag

Herjólfur siglir fyrstu ferð sína næstkomandi þriðjudag, 20. júlí og mun leggjast að bryggju 16.30 í Landeyjahöfn. Áætlun skipsins tekur svo gildi daginn eftir, miðvikudaginn 21. júlí. Samkvæmt áætlun fer skipið frá Eyjum 7:30 og fyrsta ferð frá Landeyjahöfn er svo 9:00. Síðasta ferð frá Eyjum er svo klukkan 20.00 og frá Landeyjahöfn 21:30. Áætlað […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.