Fór holu í höggi í gær
Huginn Helgason, knattspyrnuþjálfari og hreinsitæknir náði draumahöggi allra kylfinga í gær þegar hann fór holu í höggi. Draumahögginu náði hann á 12. braut á golfvellinum í Vestmannaeyjum en til verksins brúkaði hann 7-járn. 12. brautin er par þrjú braut og 142 metra löng frá gula teignum, þar sem Huginn og félagi hans, Ragnar Hilmarsson slógu upphafshöggið. „Ég vissi strax að þetta var gott högg. Boltinn fór í háaum boga að flötinni, skoppaði einu sinni hægra megin við flaggið og svo ofan í. Þetta er ekki svo flókin íþrótt, það þarf bara að koma boltanum ofan í,“ sagði Huginn brosandi í samtali við Eyjafréttir.

Nýjustu fréttir

„Einsi Kaldi lokar þegar ég hef ekki metnað í eldhúsinu lengur“
Frá Heimaeyjargosinu til kostulegra sagna af Vellinum
Nýr sæstrengur en bræðslan gengur fyrir olíu
Herjólfur fellir niður ferðir
Frá Vestmannaeyjum í norska skóla 
Kyrrðarbæn í dag
Þór flutti sjúkling til Landeyjahafnar á hæsta forgangi
Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.