Arfaslakur fyrri hálfleikur varð ÍBV að falli

Leikmenn karlaliðs ÍBV geta nagað sig í handarbökin fyrir að mæta ekki tilbúnir til leiks gegn toppliði Gróttu en liðin áttust við í Eyjum í dag. Leiknum lauk með sjö marka sigri Gróttu, 24:31 en það var fyrst og fremst arfaslakur fyrri hálfleikur sem varð Eyjaliðinu að falli. Grótta náði um tíma ellefu marka forystu […]

Stelpurnar steinlágu fyrir HK

ÍBV steinlá gegn HK í dag þegar liðin áttust við í N1 deildinni í Kópavogi. Lokatölur urðu 30:24 en staðan í hálfleik var 13:10 HK í vil. Eyjastúlkur náðu muninum niður í eitt mark 14:13 í upphafi síðari hálfleiks en þá tók við afar slæmur leikkafli og heimastúlkur skoruðu þá fimm mörk gegn aðeins einu […]

Strákarnir taka á móti toppliðinu

Karlalið ÍBV leikur nú klukkan 13:00 í dag gegn toppliði Gróttu í 1. deild Íslandsmótsins. Þetta er jafnframt fyrsti leikur liðanna í 3. umferð deildarinnar. Grótta er sem fyrr segir í efsta sæti deildarinnar og virðist hafa nokkra yfirburði gegn öðrum liðum deildarinnar. Eyjamönnum hefur hins vegar fatast nokkuð flugið eftir að hafa farið taplausir […]

Tryggvi Guðmundsson handleggsbrotinn – Frá næstu vikurnar

Tryggvi Guðmundsson, leikmaður ÍBV, verður frá keppni næstu 6-8 vikurnar eftir að hafa handleggsbrotnað í 3-1 tapi liðsins gegn Leikni R. í Lengjubikarnum í gærkvöldi. Tryggvi meiddist í fyrri hálfleiknum en fékk aðhlynningu og var teipaður. Hann ákvað að halda leik áfram og skoraði mark ÍBV ekki löngu síðar en varð svo að fara af […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.