41 árs gamall fýll kom í fiskinet við Vestmannaeyjar

41 árs gamall fýll flæktist í fiskinet við Vestmannaeyjar 18. febrúar síðastliðinn. Um var að ræða fýl sem merktur var af Óskari J. Sigurðssyni, vitaverði og veðurathugunarmanni í Stórhöfða 17. október 1970. Það þýðir að fuglinn er, að minnsta kosti 41 árs gamall en fýllinn var merktur fullorðinn. Aldrei áður hefur liðið jafn langur tími […]

Átta Eyjamenn safna mottu

Nú er mottumars hafinn í annað sinn en í mottumars, safna alvöru karlmenn yfirvaraskeggi í marsmánuði og safna um leið áheitum. Bæði er um að ræða einstaklingskeppni og liðakeppni en í einstaklingskeppninni hefur Ágúst Sverrir Daníelsson safnað hæstu upphæðinni af Eyjamönnunum, eða 13.000 krónum. Í liðakeppninni er sem stendur aðeins eitt lið, Vinir Ketils Bónda […]

Kári Kristján á sínum stað í landsliðshópnum

Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari hefur valið 18 leikmenn til þátttaöku í tveimur landsleikjum gegn Þjóðverjum í undankeppni EM. Fyrri leikurinn verður í Laugardalshöll 9. mars en síðari leikurinn í Þýskalandi 13. mars. Eyjamaðurinn Kári Kristján Kristjánsson er á sínum stað í landsliðshópnum en Kári hefur verið að vinna sér fast sæti í hópnum undanfarið og […]

Fjórar valdar í landsliðshópa

Fjórar stúlkur úr ÍBV hafa verið valdar til að taka þátt í æfingum hjá landsliðum Íslands í knattspyrnu. Þær Sóley Guðmundsdóttir, Berglind Þorvaldsdóttir og Birna Berg hafa allar verið valdar til æfinga með U-19 ára landsliði Íslands en æfingarnar eru liður í undirbúningi liðsins fyrir milliriðil Evrópumóts landsliðs sem fer fram í Wales í lok […]

Erfitt að sjá hvenær hægt verður að opna Landeyjahöfn

Miðað við ölduspá eru ekki fyrirsjáanlegt hvenær hægt verður að opna Landeyjahöfn. Tíðafar það sem af er árinu hefur verið óhemju erfitt með tilliti til dýpkunar í Landeyjahöfn en við slíku má vissulega búast um hávetur, segir á vef Siglingastofnunar. Þar kemur einnig fram að frá því að sanddæluskipið Skandia kom til landsins hafi aðeins […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.