Nú er mottumars hafinn í annað sinn en í mottumars, safna alvöru karlmenn yfirvaraskeggi í marsmánuði og safna um leið áheitum. Bæði er um að ræða einstaklingskeppni og liðakeppni en í einstaklingskeppninni hefur Ágúst Sverrir Daníelsson safnað hæstu upphæðinni af Eyjamönnunum, eða 13.000 krónum. Í liðakeppninni er sem stendur aðeins eitt lið, Vinir Ketils Bónda en vafalaust eiga fleiri Eyjamenn eftir að bætast í hópinn.