Díoxínmæling í Vestmannaeyjum í dag

Mengunarmæling fór fram í sorpbrennslunni í Vestmannaeyjum í dag. Tekin voru sýni vegna magns díoxíns, ryks, kolmónoxíðs og fleiri efna í útblæstri frá brennslunni. Niðurstöður munu liggja fyrir eftir þrjár til fjórar vikur þar sem sýnin eru rannsökuð í Þýskalandi. (meira…)
Verður svipt starfsleyfi

Umhverfisstofnun hefur sent Vestmannaeyjabæ bréf þar sem fram koma áform stofnunarinnar um að svipta Sorpbrennsluna starfsleyfi á grundvelli brota á því. Hefur stöðin ítrekað farið yfir þau mörk sem gefin eru upp fyrir ryk í útblæstri. Þetta kemur fram á heimasíðu Umhverfisstofnunar og var sett inn sl. föstdag, daginn eftir fund í Vestmannaeyjum um umhverfismál […]
Margrét skoraði í sigurleik gegn Svíum

Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði annað af tveimur mörkum Íslands í 2:1 sigri á Svíþjóð í Algarve-mótinu í knattspyrnu í dag. Mótið fer fram samnefndum bæ í Portúgal en Svíar komust yfir 0:1 strax á 2. mínútu en Margrét Lára jafnaði metin skömmu fyrir leikhlé. Katrín Jónsdóttir skoraði svo sigurmarkið á 54. mínútu en fleiri urðu […]