Landeyjahöfn opnar ekki fyrir 10. apríl

Sanddæluskipið Skandia er við störf í Landeyjahöfn. Óljóst er hvenær næst að ljúka dýpkun og áætlar Siglingastofnun út frá ölduspá að ekki verði hægt að opna höfnina fyrir 10. apríl. Landeyjahöfn hefur verið lokuð vegna sandburðar frá því um miðjan janúar. Vegna veðurs hefur dýpkunarskipið lítið getað athafnað sig í vetur. (meira…)

Góð leið til að kveðja veturinn

Leikfélag Vestmannaeyja frumsýnir í kvöld söngleikinn Mamma mia. Verkið er vel þekkt enda hefur það gengið fyrir fullu húsi í London í áratugi og bíómynd eftir söng­leiknum sló í gegn fyrir nokkrum árum. Söngleikurinn er byggður í kringum hin geysivinsælu lög ABBA. Leikstjóri upp­setningar Leikfélags Vestmannaeyja er Eyja­mönnum að góðu kunnur en Guðjón Þorsteinn Pálmarsson […]

Hermann ekki búinn að skrifa undir hjá ÍBV

Eyjamaðurinn Hermann Hreiðarsson er ekki búinn að skrifa undir samning við ÍBV eins og sagt var frá á Eyjafréttum í gær, 1. apríl. Að sjálfsögðu var um að ræða aprílgabb þetta árið. Margir þóttust sjá í gegnum gabbið en margir fóru að efast þegar Óskar Örn Ólafsson, formaður knattspyrnuráðs ÍBV tók þátt í gríninu og […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.