Eyjamaðurinn Hermann Hreiðarsson er ekki búinn að skrifa undir samning við ÍBV eins og sagt var frá á Eyjafréttum í gær, 1. apríl. Að sjálfsögðu var um að ræða aprílgabb þetta árið. Margir þóttust sjá í gegnum gabbið en margir fóru að efast þegar Óskar Örn Ólafsson, formaður knattspyrnuráðs ÍBV tók þátt í gríninu og fullyrti í viðtali að Hermann væri á leið til ÍBV.