Eyjamenn unnu Fram

Karlalið ÍBV í knattspyrnu lagði Fram að velli í síðasta leik liðanna í 2. riðli Lengjubikarsins. Lokatölur urðu 3:1 en Framarar komust reyndar yfir. Denis Sytnik, Tryggvi Guðmundsson og Matt Garner skoruðu hins vegar mörk ÍBV en öll mörk leiksins komu í fyrri hálfleik. Þar með endaði ÍBV í 3. sæti riðilsins með 11 stig […]

Helga Rún Ungfrú Suðurland 2011

Helga Rún Garðarsdóttir frá Hólmi í Austur-Landeyjum var valin fegurðardrottning Suðurlands 2011 á keppninni Ungfrú Suðurland á Hótel Selfossi í kvöld. Níu stúlkur kepptu um titilinn en í 2. sæti varð Hildur Rós Guðbjargardóttir frá Selfossi og Guðrún Birna Gísladóttir frá Hveragerði varð í þriðja sæti. Guðrún Birna var einnig kosin netstúlka sunnlenska.is. (meira…)

Allir sammála um Icesave

Á kaffistofu Hjólbarðaverkstæðisins eru oftar en ekki fjörugar umræður um allt milli himins og jarðar. Þar eru vandamál samfélagsins leyst umbúðalaust yfir einum kaffibolla. Það var því ekki hægt að finna betri stað til að taka púlsinn á Icesave kosningunum sem verða á laug­ardaginn. Og sá fáheyrði atburður átti sér stað að allir á kaffistofunni […]

Til stuðnings Írum, Grikkjum, Portúgölum og Spánverjum

Hvað er að gerast hjá íslenskri þjóð? Ég spyr aftur hvað er að gerast? Helmingur þjóðarinnar samhvæmt skoðanakönnunum vill að við borgum skuldir einkafyrirtækis. Ég keypti skuldabréf í Milestone árið 2007 fyrir nokkrar milljónir á svakalega góðum vöxtum. Öllu fögru var lofað af Milestone, sem blekktu Íslendinga og hreinlega hirtu af lífeyrisjóðum og hundruð Íslendinga […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.