Karlalið ÍBV í knattspyrnu lagði Fram að velli í síðasta leik liðanna í 2. riðli Lengjubikarsins. Lokatölur urðu 3:1 en Framarar komust reyndar yfir. Denis Sytnik, Tryggvi Guðmundsson og Matt Garner skoruðu hins vegar mörk ÍBV en öll mörk leiksins komu í fyrri hálfleik. Þar með endaði ÍBV í 3. sæti riðilsins með 11 stig úr 7 leikjum, 3 sigra, 2 jafntefli og 2 töp.