Margt áhugavert að gerast

Frosti Gíslason hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands sagðist vera ákaflega ánægður með þátttökuna á hádegisfundi á föstudag og á vinnufundum um helgina í kjölfarið. Yfirskrift þeirra var tækifæri atvinnulífsins í ferðaþjónustu, handverki, listiðnaði og hönnun. (meira…)
Stofnvísitala þorsks hækkar

Stofnvísitala þorsks hækkar fjórða árið í röð og er ástæðan sú að æ meira hefur fengist af stórum þorski. Fyrsta mat á 2010 árgangi þorsks hér við land bendir til að hann sé slakur en árgangarnir frá 2008 og 2009 mældust hins vegar meðalstórir. (meira…)
Endurmat samnings vegna dýpkunar

Innanríkisráðherra segir verktaka sem dýpkar Landeyjahöfn ekki hafa næga reynslu. Meta þurfi hvort segja eigi upp samningi við hann. Upphaflegur samningur Siglingastofnunar við Íslenska gámafélagið um dýpkun Landeyjahafnar gilti til 1. apríl síðastliðinn. Verktaki telst þó ekki hafa uppfyllt hann þar sem aðeins hefur tekist að fjarlægja um fimmtung þess magns sem samið var um. […]