Innanríkisráðherra segir verktaka sem dýpkar Landeyjahöfn ekki hafa næga reynslu. Meta þurfi hvort segja eigi upp samningi við hann. Upphaflegur samningur Siglingastofnunar við Íslenska gámafélagið um dýpkun Landeyjahafnar gilti til 1. apríl síðastliðinn. Verktaki telst þó ekki hafa uppfyllt hann þar sem aðeins hefur tekist að fjarlægja um fimmtung þess magns sem samið var um.