Nóg að gera hjá lögreglunni í vikunni

Lögreglan hafði í nógu að snúast í vikunni sem leið enda páskar og oft á tíðum hefur lögreglan verið önnum kafinn vegna hinna ýmsu verkefna. Töluverður fjöldi fólks var að skemmta sér á öldurhúsum bæjarins yfir páskahelgina og fór nokkur tími lögreglunnar í að sinna fólki sem ekki gat bjargað sér sökum ölvunar. (meira…)
Ekkert óeðlilegt að okkur sé spáð fimmta sætinu

„Mér finnst ekkert óeðlilegt að þið spáið okkur fimmta sæti. Við ætlum alltaf að gera betur en í fyrra og það er markmiðið. Við vitum samt alveg að Vala Flosadóttir ætlaði alltaf að hoppa hærra en hún náði því ekki alltaf þó að hún hafi stefnt að því,“ sagði Heimir Hallgrímsson þjálfari ÍBV um spá […]
Fótbolti.net spáir ÍBV fimmta sætinu

Sérfræðingar vefsins Fótbolti.net spá ÍBV fimmta sætinu í Íslandsmótinu í knattspyrnu í sumar. Vefurinn hefur verið að birta spá sína síðustu daga, eitt lið í einu en hér að neðan má sjá hvernig sérfræðingarnir raða liðunum upp. (meira…)
Hermann lék 500. leikinn

Hermann Hreiðarsson, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, náði stórum áfanga á löngum ferli á laugardaginn þegar hann lék með Portsmouth gegn Swansea í ensku 1. deildinni. Hermann spilaði þar sinn 500. deildaleik á löngum og farsælum ferli og varð með því aðeins þriðji íslenski knattspyrnumaðurinn í sögunni sem nær þeim leikjafjölda. (meira…)
�?treikningar Siglingamálastofnunar varðandi Landeyjahöfn rangir?

Eins og kemur fram í fyrirsögnini, þá hef ég oft sinnis velt því upp og spurt mig þeirrar spurningar, og svarað, hvort og þá hversvegna útreikningar Siglingamálastofnunnar séu rangir? Fjöl margir Eyjamenn hafa spurt mig að þessu, flestir reyndar tekið undir með mér, en sumir beðið mig um að útskýra mál mitt í grein. Hingað […]