Hermann Hreiðarsson, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, náði stórum áfanga á löngum ferli á laugardaginn þegar hann lék með Portsmouth gegn Swansea í ensku 1. deildinni. Hermann spilaði þar sinn 500. deildaleik á löngum og farsælum ferli og varð með því aðeins þriðji íslenski knattspyrnumaðurinn í sögunni sem nær þeim leikjafjölda.