Gunnar Heiðar keppir við Ronaldo og Nani

Eyjamaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði um helgina stórglæsilegt mark gegn sínu gamla félagi Halmstad þegar lið hans Norrköping tapaði 5:4. Gunnar kom Nörrköping yfir 1:2 í byrjun seinni hálfleiks þegar hannn klippti boltann á lofti fyrir utan teig og skaut honum í fallegum boga í fjærstöngina og inn, algjörlega óverjandi. Myndband af markinu má sjá […]

Fá mál en nóg að gera hjá lögreglunni

Venju samkvæmt var vikan eftir Þjóðhátíð með rólegra móti hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum og engin alvarleg mál komu upp sem hún þurfti að sinna. Það var kannski ágætt því lögreglumenn hafa haft nóg að gera við að vinna upp þau mál sem komu upp um verslunarmannahelgina. Þá hefur verið nóg að gera í að svara […]

Gunnar á Völlum kíkti til Eyja

Vikulegir þættir Gunnars á Völlum á www.mbl.is hafa slegið í gegn í sumar. Í þáttunum fer Gunnar Gauti Sigurjónsson á knattspyrnuvelli landsins og tekur þá út á sinn eigin hátt. Til að standast skoðun verður kaffið að vera gott og meðlætið enn betra. Gunnar kíkti til Eyja á leik ÍBV og Vals og óhætt að […]

Rakarinn Íslandsmeistari

Ragnar Guðmundsson varð um helgina Íslandsmeistari í golfi í flokki kylfinga 70 ára og eldri. Ragnar hafði betur í höggleik en hann lék hringina þrjá á 256 höggum en keppni var mjög spennandi því næsti maður lék á 259 og þeir tveir næstu léku á 262 höggum. Mótið fór fram á Kiðjabergsvelli en 130 manns […]

Kaupmenn afhentu undirskriftarlista

Félag kaupsýslumanna í Vestmannaeyjum skilaði í síðustu viku inn undirskriftarlista sem lágu í nokkrum verslunum í miðbænum vegna hugmynda um verslunarsvæði við Löngulág. Alls skrifuðu 845 manns undir en Gréta Hólmfríður Grétarsdóttir, formaður félagsins afhenti Gunnlaugi Grettissyni, formanni umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar og forseta bæjarstjórnar, listann. (meira…)

Sigurður Jónsson, Vestmannabraut 78

Árið 1963, ég lá á pallinum uppi á lofti í Stakkholti þar sem við bjugg­um hjá afa og ömmu. Þar var oft gestkvæmt, allskonar fírar komu þar í heimsókn. Ég heyri að margir eru í eldhúsinu hjá ömmu og legg við hlustir. Halló, halló, já þetta var Stebbi pól, og svo heyri ég líka í […]

Eiður kom inn á í sínum fyrsta leik

Eiður Aron Sigurbjörnsson var í leikmannahópi Örebro í fyrsta leik liðsins eftir að hann gekk í raðir þess. Eiður fór utan á fimmtudaginn en fyrsti leikur liðsins var í kvöld þegar liðið tók á móti Häcken á heimavelli Örebro. Eiður byrjaði á varamannabekknum en hann fékk smjörþefinn af sænska boltanum því honum var skipt inn […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.