Félag kaupsýslumanna í Vestmannaeyjum skilaði í síðustu viku inn undirskriftarlista sem lágu í nokkrum verslunum í miðbænum vegna hugmynda um verslunarsvæði við Löngulág. Alls skrifuðu 845 manns undir en Gréta Hólmfríður Grétarsdóttir, formaður félagsins afhenti Gunnlaugi Grettissyni, formanni umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar og forseta bæjarstjórnar, listann.